
Gua Sha úr ekta kristal
Gua Sha er einstakur nudd kristall. Hann er einkum ætlað fyrir andlit og háls en hentar á alla vöðva.
Að nota Gua Sha getur hjálpað til að:
Losa spennu og slaka á vöðvum
Draga úr bólgum og þrota
Örva sogæðakerfi og blóðrásina
Móta og lyfta andlitsvöðva
Draga úr ótímabærri öldrun
Vinna sem náttúruleg andlitslyfting
Framkallar fallegan ljóma í húðinni
Gua Sha er fáanlegur í Rósakvars (bleikur kristall) og Amethyst (fjólublár kristall).
Rose Quartz kristall hefur verið talinn vera tákn ástarinnar og að hann hjálpi til við fyrirgefningu og hleypi kærleika inn í lífið.
Amethyst er talinn vera einkar kraftmikill kristall sem vinnur gegn streitu, verndar gegn neikvæðni og færi frið. Sagt er að ef þú sefur með Amethyst kristal nálægt sér þá hjálpi það til við að laða að góða drauma.
Hvernig á að nota Gua Sha?
Áður en þú notar Gua Sha skaltu bera andlitsolíu á svæðið svo hann renni vel á húðinni. Notaðu léttan þrýsting til að nudda andlit og háls. Nuddaðu frá andlitinu (sjá mynd).
Gua Sha hjálpar einnig til við að þrýsta öllum hráefnum í olíunni vel inn í húðina. Við mælum með LIT andlitsolíunni.
Skelltu Gua Sha kristalnum í kæli u.m.þ.b. 20 mínútum fyrir notkun til að kæla húðina um leið og minnka bólgur.
Fyrir bestan árangur notist daglega.
Umhirða
Hver kristall er vandlega mótaður og enginn með sama lit, munstur eða að þykkt. Til að þrífa hann mælum við með að skola með volgu vatni og þurrka.
Hann kemur í sérútbúnum örtrefjapoka og fallegum kassa til að vernda hann.
Þinn að eilífu?
Farðu vel með hann því hann getur brotnað ef hann fær högg en annars endist hann og endist...að eilífu?
Við tókum saman stuttan fróðleik um kristalla aðeins til gamans. Hann má lesa hér.