
Gua Sha úr ekta Rósakvars (e. Rose quartz)
Rose Quartz er kristall hefur verið notaður um þúsundir ára. Hann hefur stundum verið kallaður ástarsteinninn. Hann hefur verið talinn hjálpa við að fyrirgefa og hleypa kærleika í lífið.
Gua Sha er einstakt nudd tæki sem er einkum ætlað fyrir andlit og háls en hægt að nota á hvaða vöðva sem þú kýst.
Að nota Gua Sha getur hjálpað við að:
Losa spennu og slaka á vöðvum
Draga úr bólgum og þrota
Örva sogæðakerfi og blóðrásina
Móta og lyfta andlitsvöðva
Draga úr ótímabærri öldrun
Vinna sem náttúruleg andlitslyfting
Framkallar fallegan ljóma í húðinni.
Hvernig á að nota Gua Sha?
Áður en þú notar Gua Sha skaltu bera andlitsolíu á svæðið. Notaðu léttan þrýsting til að nudda andlit og háls. Nuddaðu frá andlitinu (sjá dæmi um notkun á mynd). Gua Sha hjálpar einnig til við að þrýsta öllum hráefnum í olíunni vel inn í húðina. Notaðu olíu sem hentar fyrir þína húð. Við mælum með LIT andlitsolíunni.
Skelltu Gua Sha kristalnum í kæli u.m.þ.b. 20 mínútum fyrir notkun til að kæla húðina um leið og minnka bólgur.
Fyrir bestan árangur notist daglega.
Umhirða
Hver kristall er vandlega mótaður og enginn með nákvæmlega sama lit, munstur eða að þykkt. Til að þrífa hann mælum við með að skola með volgu vatni.
Þinn að eilífu?
Hann kemur í sérútbúnum örtrefjapoka og kassa. Farðu vel með hann því hann getur brotnað ef hann fær högg en annars endist hann og endist.....
Við tókum saman stuttan fróðleik um Kristall- aðeins til gamans. Hann má lesa hér