Gua Sha úr ekta Amethyst kristal
Amethyst kristall hefur verið notaður í þúsundir ára. Hann er talinn vera kraftmikill steinn sem vinnur gegn streitu, verndar gegn neikvæðni og færir frið. Sagt er að sumir sofi með Amethyst kristal á náttborðinu hjá sér til að laða að góða drauma.
Gua Sha er einstakt nudd tæki sem er einkum ætlað fyrir andlit og háls en hægt að nota á hvaða vöðva sem þú kýst.
Að nota Gua Sha getur hjálpað við að:
Losa spennu og slaka á vöðvum
Draga úr bólgum og þrota
Örva sogæðakerfi og blóðrásina
Móta og lyfta andlitsvöðva
Draga úr ótímabærri öldrun
Vinna sem náttúruleg andlitslyfting
Framkallar fallegan ljóma í húðinni.
Hvernig á að nota Gua Sha?
Áður en þú notar Gua Sha skaltu bera andlitsolíu á svæðið. Notaðu léttan þrýsting til að nudda andlit og háls. Nuddaðu frá andlitinu (sjá dæmi um notkun á mynd). Gua Sha hjálpar einnig til við að þrýsta öllum hráefnum í olíunni djúpt inn í húðina. Notaðu því olíu sem hentar fyrir þína húð. Við mælum með LIT andlitsolíunni.
Skelltu Gua Sha steininum í kæli u.m.þ.b. 20 mínútum fyrir notkun til að kæla húðina um leið og minnka bólgur.
Fyrir bestan árangur notist daglega.
Umhirða
Hver kristall er vandlega mótaður og enginn með nákvæmlega sama lit, munstur eða að þykkt. Til að þrífa steininn mælum við með að skola með volgu vatni.
Þinn að eilífu?
Hann kemur í sérútbúnum örtrefjapoka og kassa. Farðu vel með hann því hann getur brotnað ef hann fær högg en annars endist hann og endist....
Til gamans þá tókum við saman stuttan fróðleik um kristala. Hann má lesa hér.