Privacy policy
Persónuupplýsingar
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Seljandi heitir trúnaði um allar upplýsingar í tengslum við viðskipti.
Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga:
- Auðkenna viðskiptavin.
- Geta aðstoðað viðskiptavin vegna vöruskila og kvartanir
- Halda utan um og vinna með pantanir viðskiptavina s.s. staðfesta heimilisfang og/eða aðrar nauðsynlegar upplýsingar vegan pantana. Þ.m.t. að hafa samband við viðskiptavin vegna frekari upplýsinga.
- Fá yfirlit yfir vörukaup og greiðslusögu.
- Eiga samskipti við viðskiptavini okkar í gegnum síma, tölvupóst eða á annan hátt.
- Bæta bæði þá þjónustu sem við veitum sem og auka öryggi fyrir viðskiptavini.
- Koma í veg fyrir misnotkun á þjónustu okkar og koma í veg fyrir glæpi gegn fyrirtækinu.
- Koma í veg fyrir ruslpóst.
- Einfalda notkun á þjónustu með því að geyma upplýsingar um viðskiptavini, greiðsluleiðir, sendingarmáta
- Markaðssetja vörur með því að senda m.a. með áminningu um geymda/gleymda innkaupakörfu.
- Hafa umsjón með aðgangi að vefmiðlum okkar.
- Uppfylla lagalegar skyldur eins og t.d. öryggisskuldbindingar vegnaa afhentra vara. Þurfi að innkalla vöru eða upplýsa viðskiptavini um öryggi vöru gætum við þurft að láta af hendi upplýsingar um viðskiptavini.
Upplýsingar til þriðja aðila
Í einhverjum tilfellum gætu persónugreinanleg gögn verið færð til samstarfsaðila t.d. þegar kemur að markaðssetningu, flutning og dreifingu, tækniþjónustu og greiðsluleiðum. Gögn sem eru persónugreinanleg eiga að vera meðhöndluð af þriðja aðila í samræmi við lög og reglur.
Samkvæmt lögum getur reynst nauðsynlegt að veita stjórnvöldum t.d. lögreglu eða skattayfirvöldum aðgang að persónugreinanlegum upplýsingum. Að auki gætum við þurft að veita bönkum, korta- og greiðsluleiðafyrirtækjum og flutningsfyrirtækjum aðgang að gögnum sem hægt er að persónugreina. Í slíkum tilvikum eiga þeir aðilar sem fá hjá okkur persónugreinanleg gögn að vinna gögnin í samræmi við lög og reglur sem um slíkar upplýsingar gilda.
Um smákökur (e.cookies)
"Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Heimadekur.is notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.
Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og Heimadekurs vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.
Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Heimadekur.is. Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Heimadekur þar á meðal verslunarkerfið.
Heimadekur.is notar Google Analytics og Facebook Pixel til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar Heimadekur.is, t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. Heimadekur notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixel nota sínar eigin kökur en Heimadekur.is áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og klúbbmeðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixel. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.
Með því að nota vefverslun Heimadekur.is samþykkir neytandi að Heimadekur.is safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.
Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu heimadekur.is gætu takmarkast við slíkar breytingar.