website

Skilmálar

Skilmálar

Pantanir ýmist sendar með Dropp eða Íslandspósti. Þegar verslað er fyrir 7.500 kr.eða meira er frítt að senda í póstbox eða sending á afhendingarstað Dropp og þegar verslað er fyrir 15.000 þá er frí heimsending innanlands. 

Landsbyggðin: Við gerum okkar besta í að velja heimsendingu. Það er ekki alltaf í boði en við reynum að koma pöntuninni þinni sem næst þér. Ef þú býrð á landsbyggðinni og telur þennan afhendingarmáta ekki henta hafðu þá endilega samband við okkur á heimadekur@heimadekur.is og við finnum lausn. 

Þú velur vörur, setur í körfu, velur greiðslumáta (setur inn gjafakort eða kóða þar inn) svo velur þú hvernig þú vilt fá pöntunina. Pöntunin er almennt afgreidd næsta virka dag. Þú færð alltaf reikning fyrir kaupunum í tölvupósti. 

Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.

Það tekur í flestum tilvikum 1-3 virka daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin, pantanir sem berast um helgar eru afgreiddar næsta virka dag. 

Skilafrestir og endurgreiðslur
Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:
  • Varan skal vera ónotuð.
  • Varan skal vera í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi
  • Greiðslukvittun eða staðfesting á kaupum þarf að fylgja með sendingunni.
  •  14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent viðtakanda.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða gallaða vöru þá greiðir Heimadekur kostnað við endursendingu. 
Pantanir sem eru keyptar í nóvember og desember er heimilt að skila til 31. janúar ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. 

Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Verð
Öll verð í netverslun hjá Heimadekur eru með 24% virðisaukaskatti.
Vinsamlegast athugaðu að verð geta breyst án fyrirvara, vegna gengissveiflna, rangra upplýsinga eða prentvillna.

Greiðslur 
Hægt er að greiða með debet/kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Valitor, Netgíró, Pei. Við tökum einnig við millifærslum til þess þarf að hafa samband við okkur á heimadekur@heimadekur.is. Þú færð alltaf reikning fyrir kaupunum í tölvupósti. 

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila.

Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. 

Hafa samband
Við leggjum okkur fram um að þjónusta viðskiptavini okkar og reynum að leysa úr málunum í sameiningu. Það er ávallt velkomið er að hafa samband við okkur í gegnum netfangið heimadekur@heimadekur.is með fyrirspurnir eða athugasemdir.